Hafnarfjarðarbær - fjárhagsáætlun 2025 og 2026-2028
Comunicato Precedente
Comunicato Successivo
Hafnarfjarðarbær - fjárhagsáætlun 2025 og 2026-2028
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar, sem samþykkt var í bæjarstjórn í dag, gerir ráð fyrir 1.010 milljóna króna afgangi á A- og B-hluta sveitarfélagsins á næsta ári. Rekstur A-hluta verður jákvæður um 45 milljónir króna á árinu 2025 samkvæmt áætlun. Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 5,4% af heildartekjum eða 2.834 milljónir króna.
Áætlað er að skuldaviðmið sveitarfélagsins í árslok 2025 verði 92,5%, sem er vel undir 150% skuldaviðmiði samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga. Útsvarsprósenta verður óbreytt á milli ára 14,93%. Álagningarprósenta fasteignaskatta verður jafnframt óbreytt milli ára sem og skattprósenta á atvinnuhúsnæði.
Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með um 32 þúsund íbúa. Áætluð heildarútgjöld nema um 47,0 milljörðum króna, áætlaður launakostnaður nemur 25,6 milljörðum króna og áætlaður fjármagnskostnaður 2,4 milljörðum króna.
Helstu tölur úr fjárhagsáætlun 2025
- Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta jákvæð um 1.010 milljónir króna
- Rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 45 milljón króna
- Skuldaviðmið áætlað um 92,5% í árslok 2025
- Áætlað veltufé frá rekstri A- og B-hluta 2.834 milljónir króna eða 5,4% af heildartekjum
- Útsvarsprósenta áfram 14,93%
- Álagningarprósenta fasteignaskatta verður óbreytt milli ára og er gert ráð fyrir að fasteignagjöld muni lækka að raungildi milli ára að meðaltali
- Gert er ráð fyrir almennri hækkun gjaldskrár um 3,9% til þess að mæta verðlags- og launahækkunum.
- Áætlaðar fjárfestingar nema tæplega 9,7 milljörðum króna, þar af eru teknir frá fjármunir vegna fyrirhugaðra samninga um kaup á knatthúsinu Skessunni.
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar var lögð fram til seinni umræðu og samþykkt á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fimmtudaginn 12. desember 2024. Fjárhagsáætlunin nær til næsta árs auk þriggja ára áætlunar fyrir árin 2026-2028.
Attachments
- Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar 2025-2028 - síðari umræða
- Hafnarfjörður - greinargerð 2025-2028
Ufficio Stampa
Nasdaq GlobeNewswire (Leggi tutti i comunicati)
2321 Rosecrans Avenue. Suite 2200
90245 El Segundo Stati Uniti




