Comunicati Stampa
Economia

Hafnarfjarðarbær - fjárhagsáætlun 2025 og 2026-2028

Hafnarfjarðarbær - fjárhagsáætlun 2025 og 2026-2028 Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar, sem samþykkt var í bæjarstjórn í dag, gerir ráð fyrir 1.010 milljóna króna afgangi á A- og B-hluta sveitarfélagsins á næsta ári. Rekstur A-hluta verður jákvæður um 45 milljónir króna á árinu 2025 samkvæmt áætlun. Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 5,4% af heildartekjum eða 2.834 milljónir króna.Áætlað er að skuldaviðmið sveitarfélagsins í árslok 2025 verði 92,5%, sem er vel undir 150%...
Hafnarfjördur, (informazione.news - comunicati stampa - economia)

Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar, sem samþykkt var í bæjarstjórn í dag, gerir ráð fyrir 1.010 milljóna króna afgangi á A- og B-hluta sveitarfélagsins á næsta ári. Rekstur A-hluta verður jákvæður um 45 milljónir króna á árinu 2025 samkvæmt áætlun. Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 5,4% af heildartekjum eða 2.834 milljónir króna.

Áætlað er að skuldaviðmið sveitarfélagsins í árslok 2025 verði 92,5%, sem er vel undir 150% skuldaviðmiði samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga. Útsvarsprósenta verður óbreytt á milli ára 14,93%. Álagningarprósenta fasteignaskatta verður jafnframt óbreytt milli ára sem og skattprósenta á atvinnuhúsnæði.

Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með um 32 þúsund íbúa. Áætluð heildarútgjöld nema um 47,0 milljörðum króna, áætlaður launakostnaður nemur 25,6 milljörðum króna og áætlaður fjármagnskostnaður 2,4 milljörðum króna.

Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar var lögð fram til seinni umræðu og samþykkt á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fimmtudaginn 12. desember 2024. Fjárhagsáætlunin nær til næsta árs auk þriggja ára áætlunar fyrir árin 2026-2028.

Attachments


Per maggiori informazioni
Sito Web
hafnarfjordur.is
Ufficio Stampa
 Nasdaq GlobeNewswire (Leggi tutti i comunicati)
2321 Rosecrans Avenue. Suite 2200
90245 El Segundo Stati Uniti
Allegati
Non disponibili