Economia
Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 5
Í 5. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.660.000 eigin hluti að kaupverði 15.901.300 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 106.479.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 110.139.000 hluti, eða um 2,99% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 433.656.950 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is
2321 Rosecrans Avenue. Suite 2200
90245 El Segundo Stati Uniti