Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki - AL220535

Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki, AL220535, sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins.Um er að ræða verðtryggðan skuldabréfaflokk með lokagjalddaga 22. maí 2035. Endurgreiðsla skuldabréfaflokksins fylgir 30 ára jafngreiðsluferli (annuity) fram til lokagjalddaga þegar allar eftirstöðvar höfuðstóls greiðast í einni greiðslu en greiðslur vaxta og höfuðstóls fara fram á sex mánaða fresti. Flokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu...
Comunicato Precedente

next
Comunicato Successivo

next

Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki, AL220535, sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins.

Um er að ræða verðtryggðan skuldabréfaflokk með lokagjalddaga 22. maí 2035. Endurgreiðsla skuldabréfaflokksins fylgir 30 ára jafngreiðsluferli (annuity) fram til lokagjalddaga þegar allar eftirstöðvar höfuðstóls greiðast í einni greiðslu en greiðslur vaxta og höfuðstóls fara fram á sex mánaða fresti. Flokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,25%.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudagurinn 22. maí 2025.

Nánari upplýsingar veitir:

Ingólfur Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri, [email protected].


Per maggiori informazioni
Sito Web
al.is

Ufficio Stampa

 Nasdaq GlobeNewswire (Leggi tutti i comunicati)
2321 Rosecrans Avenue. Suite 2200
90245 El Segundo Stati Uniti

Allegati
Slide ShowSlide Show
Non disponibili
;