Comunicati Stampa
Turismo

Ársreikningur Íslandshótela hf. fyrir árið 2024

Ársreikningur Íslandshótela hf. fyrir árið 2024  Stjórn Íslandshótela hf. staðfesti á fundi í dag, föstudaginn 4. apríl 2025, ársreikning félagsins fyrir árið 2024. Ársreikningur félagsins hefur nú verið birtur. Helstu lykiltölur ársins 2024 samanborið við 2023: Rekstrartekjur námu 16.669 m.kr. (2023: 16.784 m.kr.) EBITDA nam 4.415,8 m.kr. (2023: 4.956,4 m.kr.) Hagnaður eftir skatta nam 104,8 m.kr. (2023: 498,0 m.kr.) Heildareignir í árslok 65.430,3 m.kr. (2023: 62...
Reykjavík, (informazione.news - comunicati stampa - turismo)

 

Stjórn Íslandshótela hf. staðfesti á fundi í dag, föstudaginn 4. apríl 2025, ársreikning félagsins fyrir árið 2024. Ársreikningur félagsins hefur nú verið birtur. 

Helstu lykiltölur ársins 2024 samanborið við 2023: 

Á árinu 2024 störfuðu að jafnaði 647 manns hjá félaginu miðað við heilsársstörf.  

Bókfært virði eigna Íslandshótela hækkaði um 3.573,5 m.kr. eftir að virðismat á fasteignum félagsins var endurmetið, samkvæmt mati óháðs sérfræðings. 

Félagið er sem fyrr í fararbroddi í ferða- og gistiþjónustu hér á landi og heldur áfram að leita vaxtartækifæra í greininni. Íslandshótel hafa sett sjálfbærni í forgang, og öll hótel félagsins hafa nú hlotið Green Key vottun. Félagið skrifaði einnig undir Glasgow-yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsaðgerðir í ferðaþjónustu og fékk Umhverfisverðlaun Terra 2024 fyrir aðgerðir í endurvinnslu og úrgangsmálum. Um mitt síðasta ár tilkynnti stjórn félagsins að ákveðið hefði verið að falla frá fyrirhuguðu útboði hlutafjár í félaginu. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um hvort félagið stefni á skráningu síðar. 

Stjórn leggur til að ekki verði greiddur arður vegna ársins 2024 og að afkoma ársins verði færð yfir til næsta árs. 

„ ,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela. 

Ársreikningur félagsins er meðfylgjandi og er hann einnig að finna á heimasíðu félagsins, www.islandshotel.is/fjarfestar 

Félagið er með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands og fylgir þeim reglum sem gilda um félög með skráða fjármálagerninga á skipulegum markaði. Meðfylgjandi er staðfestingarbréf frá Deloitte vegna skuldabréfaflokks IH140647. 

Attachments


Per maggiori informazioni
Sito Web
islandshotel.is
Ufficio Stampa
 Nasdaq GlobeNewswire (Leggi tutti i comunicati)
2321 Rosecrans Avenue. Suite 2200
90245 El Segundo Stati Uniti
Allegati
Non disponibili