Útgáfuáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar fyrir apríl til desember 2025

Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkti fjárhagsáætlun ársins 2025 og 2026-2028 á fundi sínum 12. desember 2024 og lántökuáætlun fyrir árið 2025 á sama tíma. Gert er ráð fyrir að lántaka bæjarsjóðs nemi allt að 6.064 m.kr. á árinu 2025. Lántakan verður framkvæmd með útgáfu nýs skuldabréfaflokks eða með öðrum hætti sem álitinn er hagkvæmur út frá markaðsaðstæðum  hverju sinni.Skuldabréfaútboð Hafnarfjarðarkaupstaðar á árinu eru fyrirhuguð á eftirfarandi dögum: 14. maí17. september...
Comunicato Precedente

next
Comunicato Successivo

next

Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkti fjárhagsáætlun ársins 2025 og 2026-2028 á fundi sínum 12. desember 2024 og lántökuáætlun fyrir árið 2025 á sama tíma. Gert er ráð fyrir að lántaka bæjarsjóðs nemi allt að 6.064 m.kr. á árinu 2025.
Lántakan verður framkvæmd með útgáfu nýs skuldabréfaflokks eða með öðrum hætti sem álitinn er hagkvæmur út frá markaðsaðstæðum  hverju sinni.

Skuldabréfaútboð Hafnarfjarðarkaupstaðar á árinu eru fyrirhuguð á eftirfarandi dögum:

  • 14. maí
  • 17. september
  • 12. nóvember

Útgáfuáætlun er lögð fram til að auka fyrirsjáanleika á markaði en Hafnarfjarðarkaupstaður áskilur sér rétt til að bregða út af þessari áætlun, fella niður útboð og/eða bæta við útboðsdögum. Útgáfuáætlunin nær frá apríl til desember 2025.

Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi að lágmarki einum degi fyrir útboð.

Umsjónaraðili skuldabréfaútboða fyrir Hafnarfjarðarkaupstað er Markaðsviðskipti Arion banka.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
sviðsstjóri fjármálasviðs
[email protected]


Per maggiori informazioni
Sito Web
hafnarfjordur.is

Ufficio Stampa

 Nasdaq GlobeNewswire (Leggi tutti i comunicati)
2321 Rosecrans Avenue. Suite 2200
90245 El Segundo Stati Uniti

Allegati
Slide ShowSlide Show
Non disponibili
;