Útgáfuáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar fyrir apríl til desember 2025
Comunicato Precedente
Comunicato Successivo
Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkti fjárhagsáætlun ársins 2025 og 2026-2028 á fundi sínum 12. desember 2024 og lántökuáætlun fyrir árið 2025 á sama tíma. Gert er ráð fyrir að lántaka bæjarsjóðs nemi allt að 6.064 m.kr. á árinu 2025.
Lántakan verður framkvæmd með útgáfu nýs skuldabréfaflokks eða með öðrum hætti sem álitinn er hagkvæmur út frá markaðsaðstæðum hverju sinni.
Skuldabréfaútboð Hafnarfjarðarkaupstaðar á árinu eru fyrirhuguð á eftirfarandi dögum:
- 14. maí
- 17. september
- 12. nóvember
Útgáfuáætlun er lögð fram til að auka fyrirsjáanleika á markaði en Hafnarfjarðarkaupstaður áskilur sér rétt til að bregða út af þessari áætlun, fella niður útboð og/eða bæta við útboðsdögum. Útgáfuáætlunin nær frá apríl til desember 2025.
Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi að lágmarki einum degi fyrir útboð.
Umsjónaraðili skuldabréfaútboða fyrir Hafnarfjarðarkaupstað er Markaðsviðskipti Arion banka.
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Benediktsdóttir
sviðsstjóri fjármálasviðs
[email protected]
Ufficio Stampa
Nasdaq GlobeNewswire (Leggi tutti i comunicati)
2321 Rosecrans Avenue. Suite 2200
90245 El Segundo Stati Uniti




